Norðlæg átt 3-10 m/s og léttskýjað, en skýjað á Norður- og Austurlandi og þokuloft á köflum. Hiti yfir daginn frá 1 stigi norðaustanlands, að 13 stigum á Suðurlandi.
Bætir heldur í vind í kvöld og nótt, norðan 5-13 á morgun og dálítil snjókoma eða slydda norðaustan- og austanlands, en bjartviðri á suðvestanverðu landinu. Hiti breytist lítið.
Spá gerð 26.04.2024 05:07
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
Stærð | Tími | Gæði | Staður |
---|---|---|---|
1,6 | 24. apr. 19:58:47 | Yfirfarinn | 13,0 km A af Hamrinum |
1,5 | 25. apr. 06:48:07 | Yfirfarinn | 4,5 km VNV af Hábungu |
1,3 | 24. apr. 23:34:37 | Yfirfarinn | 5,6 km NA af Eldey á Rneshr. |
Eldgos á Sundhnúksgígaröðinni
Eldgosið við Sundhnúksgíga heldur áfram með svipuðum hætti og gýs nú aðeins einn gígur. Áfram er jarðskjálftavirkni á svæðinu í lágmarki. Sjá nánar í frétt á forsíðu
Upplýsingar um gasdreifingarspá má sjá hér
Skrifað af vakthafandi jarðvísindamanni 25. apr. 04:48
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
---|
Spáin gildir fyrir stór landsvæði og þarf því ekki að vera lýsandi fyrir byggð.
Landshluti | fös. 26. apr. | lau. 27. apr. | sun. 28. apr. |
---|---|---|---|
Suðvesturhornið
|
|||
Norðanverðir Vestfirðir
|
|||
Tröllaskagi utanverður
|
|||
Eyjafjörður innanverður (tilraunaverkefni)
|
|||
Austfirðir
|
Íslenski veturinn, frá fyrsta vetrardegi 28. október 2023 til og með 24. apríl 2024 var kaldur. Meðalhiti á landsvísu var -0,2 stig sem er, -1,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Íslenski veturinn hefur ekki verið eins kaldur síðan veturinn 1998-99. Að tiltölu var kaldara á norðanverðu landinu. En veður var almennt gott. Það var hægviðrasamt og illviðri tiltölulega fátíð. Veturinn var óvenjulega þurr og sólríkur suðvestanlands og er veturinn sá sólríkasti í Reykjavík frá upphafi mælinga.
Lesa meiraUppfært 23. apríl kl. 14:50
Áfram gýs úr einum gíg skammt austan við Sundhnúk, eins og hefur gert frá 5. apríl. Líkt og áður rennur hraun stutta vegalengd í opinni hraunelfur til suðurs frá gígnum en lengra í lokuðum rásum. Sá hluti hraunbreiðunnar sem liggur meðfram varnargörðum austan Grindavíkur hefur þykknað undanfarna daga eins og meðfylgjandi hreyfimyndir sýna. Myndirnar sýna muninn hraunbreiðunni á milli 18. og 23. Apríl. Efri myndirnar eru úr vefmyndavél Almannavarna sem staðsett er á varnargarði austan Grindavíkur og horfir á hrauntunguna sem rann í átt að Suðurstrandarvegi í upphafi eldgossins. Neðri myndirnar eru einnig úr vefmyndavél Almannavarna sem staðsett er uppi á Hagafelli og horfir til suðurs.
Evrópa er ekki undanskilin þegar kemur að afleiðingum loftslagsbreytinga. Hlýnun mælist hröðust í Evrópu, en hiti álfunnar hækkar tvöfalt á við hnattræna hlýnun. Árið 2023 mældist hiti í Evrópu 1,0 °C hærri en meðalhiti viðmiðunartímabilsins 1991-2020 og 2,6 °C hærri en fyrir iðnbyltingu. Ársmeðalhiti var yfir meðallagi í nær allri álfunni árið 2023, ef frá eru talin Skandinavía, Ísland og suðausturhluti Grænlands.
Lesa meiraÍ dag er liðinn einn mánuður frá upphafi eldgossins sem nú er í gangi á Sundhnúksgígaröðinni. Eldgosið, sem hófst að kvöldi 16. mars, er það fjórða frá því að kvikusöfnun hófst undir Svartsengi í lok október 2023. Eldgosið nú hefur staðið lengst allra eldgosanna á Sundhnúksgígaröðinni í þessari hrinu eldgosa og næstlengst þeirra gosa sem hafa orðið á Reykjanesskaga síðan 2021. Einungis fyrsta eldgosið í Fagradalsfjalli sem hófst í mars 2021 er lengra, en það stóð yfir í um 6 mánuði.
Í gær varð skjálftahrina í norðvesturhluta Öskju og mældust tæplega 30 skjálftar frá kl. 8 um morguninn til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 3,5 að stærð og varð á um 5 km dýpi. Einnig mældust þrír skjálftar frá 2,0 til 2,5 að stærð, en aðrir skjálftar voru minni. Jarðskjálftavirkni hefur lítið breyst á milli mánaða og verið nokkuð stöðug undanfarið þar til í gær. Síðast mældust skjálftar yfir 3 að stærð í janúar 2022 og október 2021.
Lesa meiraMistur samanstendur af þurrum og örsmáum rykögnum, sem eru ósýnilegar hver fyrir sig, en draga þó úr skyggni, sveipa landið hulu og deyfa litbrigði þess. Mistrið er bláleitt séð móti dökkum bakgrunni (fjallablámi) en gulleitt ef það ber við björt ský, jökla eða sólina. Stundum er það upprunnið á heimaslóð sem moldrok úr söndum landsins og er sandgult eða grábrúnleitt verði það mjög þétt. Hingað berst einnig mistur frá Evrópu, það er að jafnaði bláleitara en það innlenda.
Lesa meira