Norðan og norðaustan 5-13 m/s og lítilsháttar skúrir eða él, en bjartviðri um landið suðvestanvert. Slydda eða snjókoma austanlands fram eftir degi.
Austlægari í nótt og á morgun og heldur hvassari syðst. Stöku skúrir eða él og jafnvel þokuloft fyrir norðan og austan, en bjart veður á Vesturlandi.
Hiti yfir daginn frá 1 stigi norðaustanlands, að 12 stigum á Suðurlandi, en mildast vestanlands á morgun.
Spá gerð 27.04.2024 09:50
Textaspáin gildir ef munur er á textaspá og sjálfvirkum spám!
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Láglendi | |
---|---|
Hálendi | |
---|---|
Óyfirfarnar frumniðurstöður
Stærð | Tími | Gæði | Staður |
---|---|---|---|
2,2 | 26. apr. 15:48:18 | Yfirfarinn | 5,0 km SA af Bláfjallaskála |
1,8 | 25. apr. 20:28:46 | Yfirfarinn | 3,7 km NNV af Geirfugladrangi á Rneshr. |
1,7 | 27. apr. 06:39:38 | Yfirfarinn | 3,0 km NV af Eldeyjardrangi á Rneshr. |
Eldgos á Sundhnúksgígaröðinni
Eldgosið við Sundhnúk heldur áfram og líkt og síðan 5. apríl er einn gígur, skammt austan við Sundhnúk, virkur. Hraun rennur stutta vegalend til suðurs frá gígnum í opinni hrauná en lengra í lokuðum rásum. Hluti hraunbreiðunnar nærri varnargörðum austan Grindavíkur heldur áfram að þykkna hægt og rólega.Áfram er jarðskjálftavirkni á svæðinu í lágmarki. Sjá nánar í frétt á forsíðu
Upplýsingar um gasdreifingarspá má sjá hér
Skrifað af vakthafandi jarðvísindamanni 26. apr. 14:09
Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það. Meira
Vatnsfall | Staður | Rennsli | Vatnshiti |
---|
Spáin gildir fyrir stór landsvæði og þarf því ekki að vera lýsandi fyrir byggð.
Landshluti | lau. 27. apr. | sun. 28. apr. | mán. 29. apr. |
---|---|---|---|
Suðvesturhornið
|
|||
Norðanverðir Vestfirðir
|
|||
Tröllaskagi utanverður
|
|||
Eyjafjörður innanverður (tilraunaverkefni)
|
|||
Austfirðir
|
Uppfært 26. apríl kl. 12:30
Eldgosið við Sundhnúk heldur áfram og líkt og síðan 5. apríl er einn gígur, skammt austan við Sundhnúk, virkur. Hraun rennur stutta vegalend til suðurs frá gígnum í opinni hrauná en lengra í lokuðum rásum. Hluti hraunbreiðunnar nærri varnargörðum austan Grindavíkur heldur áfram að þykkna hægt og rólega.
Landris í Svartsengi heldur áfram á sama hraða og líkön gera ráð fyrir því að það magn kviku sem bæst hefur við kvikuhólfið í Svartsengi frá því að eldgosið hófst 16. mars nálgist nú 10 milljón m3 eins og línuritið hér að neðan sýnir. Í fyrri atburðum hefur kvika hlaupið frá Svartsengi þegar á bilinu 8 til 13 milljónir m3 hafa bæst við í kvikuhólfið frá síðasta kvikuhlaupi.
Íslenski veturinn, frá fyrsta vetrardegi 28. október 2023 til og með 24. apríl 2024 var kaldur. Meðalhiti á landsvísu var -0,2 stig sem er, -1,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Íslenski veturinn hefur ekki verið eins kaldur síðan veturinn 1998-99. Að tiltölu var kaldara á norðanverðu landinu. En veður var almennt gott. Það var hægviðrasamt og illviðri tiltölulega fátíð. Veturinn var óvenjulega þurr og sólríkur suðvestanlands og er veturinn sá sólríkasti í Reykjavík frá upphafi mælinga.
Lesa meiraEvrópa er ekki undanskilin þegar kemur að afleiðingum loftslagsbreytinga. Hlýnun mælist hröðust í Evrópu, en hiti álfunnar hækkar tvöfalt á við hnattræna hlýnun. Árið 2023 mældist hiti í Evrópu 1,0 °C hærri en meðalhiti viðmiðunartímabilsins 1991-2020 og 2,6 °C hærri en fyrir iðnbyltingu. Ársmeðalhiti var yfir meðallagi í nær allri álfunni árið 2023, ef frá eru talin Skandinavía, Ísland og suðausturhluti Grænlands.
Lesa meiraÍ dag er liðinn einn mánuður frá upphafi eldgossins sem nú er í gangi á Sundhnúksgígaröðinni. Eldgosið, sem hófst að kvöldi 16. mars, er það fjórða frá því að kvikusöfnun hófst undir Svartsengi í lok október 2023. Eldgosið nú hefur staðið lengst allra eldgosanna á Sundhnúksgígaröðinni í þessari hrinu eldgosa og næstlengst þeirra gosa sem hafa orðið á Reykjanesskaga síðan 2021. Einungis fyrsta eldgosið í Fagradalsfjalli sem hófst í mars 2021 er lengra, en það stóð yfir í um 6 mánuði.
Í gær varð skjálftahrina í norðvesturhluta Öskju og mældust tæplega 30 skjálftar frá kl. 8 um morguninn til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 3,5 að stærð og varð á um 5 km dýpi. Einnig mældust þrír skjálftar frá 2,0 til 2,5 að stærð, en aðrir skjálftar voru minni. Jarðskjálftavirkni hefur lítið breyst á milli mánaða og verið nokkuð stöðug undanfarið þar til í gær. Síðast mældust skjálftar yfir 3 að stærð í janúar 2022 og október 2021.
Lesa meiraStundum gefur að líta á himninum ský sem líkjast fljúgandi diskum. Þetta eru svokölluð vindskafin netjuský, eða altocumulus lenticularis, eins og þau heita á latínu.
Lesa meira