<p><img src="//vefgreinir.hi.is/piwik.php?idsite=122" style="border:0;" alt="">
Sólin Sólin Rís 06:55 • sest 20:12 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:37 • Sest 06:37 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:30 • Síðdegis: 20:46 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:32 • Síðdegis: 14:38 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvert er formlegt heiti landsins okkar?

Ari Páll Kristinsson

Formlegt heiti er Ísland. Það er misskilningur ef menn halda að orðið lýðveldi sé hluti af nafninu.

Yfirskrift stjórnarskrárinnar er Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Eins og sjá má er orðið lýðveldi haft með litlum staf. Margir hafa tekið eftir skjöldum við sendiráð Íslands erlendis þar sem stendur LÝÐVELDIÐ ÍSLAND og hér og þar í íslenskum textum af ýmsu tagi hefur mátt rekast á ritháttinn Lýðveldið Ísland. Margir virðast sem sé hafa talið það vera hið formlega nafn landsins. Sökum þessa ósamræmis leitaði ég eftir úrskurði í forsætisráðuneytinu fyrir nokkrum árum um formlegt heiti ríkisins. Niðurstaðan var Ísland. Um orðið lýðveldi, framan við Ísland, segir í bréfi forsætisráðuneytis til mín, dags. 30. september 2004, að það „lýsi eingöngu því stjórnarformi sem hér ríkir … og teljist því ekki vera hluti af sérnafni ríkisins“.

Ísland séð utan úr geimnum.

Ríkið okkar heitir því Ísland og má svo sem kalla í texta lýðveldið Ísland. En orðið lýðveldi er sem sé ekki hluti nafnsins.

Frekara lesefni á Vísidnavefnum:

Mynd:

Höfundur

Ari Páll Kristinsson

rannsóknarprófessor hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Útgáfudagur

11.1.2010

Spyrjandi

N.N.

Tilvísun

Ari Páll Kristinsson. „Hvert er formlegt heiti landsins okkar?“ Vísindavefurinn, 11. janúar 2010. Sótt 29. mars 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=54970.

Ari Páll Kristinsson. (2010, 11. janúar). Hvert er formlegt heiti landsins okkar? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=54970

Ari Páll Kristinsson. „Hvert er formlegt heiti landsins okkar?“ Vísindavefurinn. 11. jan. 2010. Vefsíða. 29. mar. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=54970>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd: ...