COVID-19: Bóluefninu COVID-19 Vaccine Moderna frá hefur verið veitt skilyrt íslenskt markaðsleyfi

Annað bóluefnið sem samþykkt er á Íslandi gegn COVID-19

Lyfjastofnun veitti rétt í þessu bóluefninu „COVID-19 Vaccine Moderna“  skilyrt íslenskt markaðsleyfi. Bóluefnið ver einstaklinga gegn COVID-19 og er ætlað til notkunar hjá einstaklingum 18 ára og eldri. Byggir markaðsleyfið á markaðsleyfi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, en leyfisveiting hennar byggir á meðmælum Lyfjastofnunar Evrópu. Bæði meðmælin og markaðsleyfi framkvæmdastjórnarnarinnar birtust fyrr í dag.

Um er að ræða annað bóluefnið gegn COVID-19 sem hlýtur markaðsleyfi hérlendis, en hið fyrra var bóluefnið Comirnaty frá BioNTech/Pfizer. Yfirlestur á íslenskum þýðingum fylgiseðils og samantektar á eiginleikum lyfs stendur yfir hjá Lyfjastofnun og verða íslenskir textar birtir um leið og þeir eru endanlegir. Sérstök upplýsingasíða um bóluefnið verður einnig birt von bráðar á vef Lyfjastofnunar.

Síðast uppfært: 6. janúar 2021
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat