Juno-verðlaunin

kanadísk tónlistarverðlaun

Juno-verðlaunin (eða Juno Awards), betur þekkt sem JUNOS, eru árleg verðlaun veitt kanadísku tónlistarfólki og hljómsveitum. Verðlaunin voru fyrst afhent árið 1970 og gengu þá undir nafninu Gold Leaf Awards. Verðlaunin eru talin vera kanadíska útgáfan af bresku Brit-verðlaununum og bandarísku Grammy-verðlaununum. Meðlimir Canadian Academy of Recording Arts and Sciences (CARAS) eða aðrir sérfræðingar sjá um val sigurvegara sumra flokka, á meðan önnur verðlaun fara eftir velgengni í sölu.

The Juno Awards
Veitt fyrir Framúrskarandi árangur í tónlistariðnaðinum
Land Kanada
Umsjón CARAS
Fyrst veitt 23. febrúar 1970; fyrir 54 árum (1970-02-23) (sem Gold Leaf Awards)
Vefsíða junoawards.ca

Tenglar breyta

   Þessi tónlistargrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.